Jóga er heilstætt kerfi sem hefur þróast í árþúsundir í ýmsar greinar. Mestallt jóga er runnið undan rifjum Patanjalis, en hann skrifaði jógasútrúrnar einhverjum þúsundum ára fyrir krist. Jógað sem hann setti þar saman í kerfi var kallað astaunga jóga, eða hin áttfalda leið.
Jógað er því í grunninn byggt á átta hlutum. Einn af þeim eru jógaæfingar, eða asanas (stöður sem þægilegt er að halda). Aðrir hlutar snúast t.d um hugleiðslu, siðareglur og öndun.
Því er mikilvægt að gera sér grein fyrir að jógaæfingar eru ekki það sem skilgreinir jóga, og alls ekki það eina sem jóga snýst um. Jóga er kerfi til þess að ná ákveðnum markmiðum. Æðst af þeim markmiðum er sameining við þinn innsta kjarna/alheimsvitund/skilyrðislausa ást/Guð eða hvaðeina sem fólk vill kalla þetta ástand.
Jógaæfingarnar gegna hinsvegar veigamiklu hlutverki á leið iðkandans. Þær fínstilla líkamann og gera honum kleift að starfa á sem eðlilegastan og skilvirkastan hátt. Jógaæfingarnar teygja, styrkja og slaka á en þær hafa einnig fíngerðari áhrif á hugann og líkamann. Hver æfing hefur ákveðin áhrif á innkirtakerfi líkamanns og gefur þeim einskonar nudd. Þær setja þrýsting á þá, eða taka þrýsting af þeim. Eða gera þetta tvennt til skiptis. Þannig er hægt að hafa mikil áhrif á hluti sem tengjast innkirtlakerfinu eins og ótta, feimni, stress, kvíða, reiði osfrv. Annað veigamikið hlutverk sem þær gegna er að gera líkamann tilbúinn til þess að stunda hugleiðslu. Jógaæfingarnar auka einbeitingu, gera þér kleift að sitja lengur í hugleiðslustöðu, róa hugann niður, opna fyrir orkuflæðið í líkamanum og gera þér auðveldara að útiloka þig frá líkamanum svo fátt eitt sé nefnt. Það er svo í hugleiðslunni sem fólk upplifir yfirleitt sínar áhrifamestu stundir.
Í jógatímunum hjá Einari Indra er farið vel yfir jógaæfingar þar sem hverjum og einum er sinnt, einnig er ávallt gerð slökun í lokin ásamt léttri hugleiðslu.
Babanam Kevalam – Ást er allt sem er
Ég mæli með þessum jógatímum hjá Einari. Mér leið vel í sálinni og líkamanum eftir alla tímana. Losnaði alveg við vöðvabólgu í herðum, svaf betur og sveif sátt útí daginn.