Námskeið

Engin námskeið í gangi í augnablikinu.

Í gangi eru einkatímar og er einnig hægt að skipuleggja tíma fyrir hópa.

 

—————————

Jógatímar á þriðjudögum og fimmtudögum – Mars-apríl 2011

Hentar öllum, jafnt þeim sem hafa komið áður og byrjendum. Farið er  yfir grunn jógastöður úr hatha jógakerfinu í bland við A.M jógaæfingar. Tímarnir eru mestmegnir rólegir og slakandi. Farið er vel í stöðurnar, fundið fyrir áhrifum þeirra og leitað inná við. Mikið unnið með öndun og æfingar gerðar í tengslum við djúpa öndun.

Æfingarnar vinna vel gegn stressi og gefa mikla orku. Unnið er með líkamsstöðuna og flesta líkamshluta eins og háls, axlir, olnboga, úlnliði,  bak, mjaðmir, hné, ökla, tær o.s.frv.  Aðaláherslan er á rólegri æfingar en þó verða erfiðari og meira orkukrefjandi æfingar teknar inná milli.

Kennsla fer fram í litlum hópum, ekki fleiri en 15, til þess að skapa betra rými fyrir kennarann að leiðbeina hverjum og einum.

Eftir hvern tíma er slökun og létt hugleiðsla

„Mér finnst námskeiðið rétt! Það þýðir ég leiðréttist bæði líkamlega og andlega – varð eins og ég á að vera. Unaður :) “ – Ónafngreindur iðkandi, úr könnun eftir námskeiðið

Kennari er Einar Indra.

Einar hefur kennt jóga og hugleiðslu undanfarin 10 ár og sótt ýmsar ráðstefnur í tengslum við það. Í ágúst 2010 lauk hann jógakennaranámi hjá alþjóðlega jógafélaginu Ananda Marga. Hann leggur áherslu á Ananda Marga jógaæfingar, sem vinna með einstaklinginn líkamlega, hugrænt og andlega, en fléttar einnig inní þær áherslum úr öðrum leiðum. Einar er einnig menntaður í félagsuppeldisfræðum og er framhaldsskóla- og grunnskólakennari. Hann kennir jóga sem valfag í menntaskóla allt árið ásamt því að kenna 5 – 8 ára krökkum jóga í barnaskóla.

Skráning og upplýsingar  sendast í einarindra@hotmail.com, – http://einarindra.wordpress.com/. Vinsamlegast sendið á mig fullt nafn og síma.

„Ég hef þjáðst af bakmeiðslum eftir umferðaslys. Er auðmjúk og þakklát fyrir námskeiðið, sérstaklega æfingarnar sem við gerum og leiðbeiningarnar. Mæli með þessu við hvern og einn og vil meira :)

Ónafngreindur iðkandi, úr könnun eftir námskeiðið

ÁST OG FRIÐUR

3 Responses to Námskeið

  1. Sæll Kolbrún heiti ég mig langar að vita hvort þú ferð eitthvað út á land með námskeið, t.d. um helgar.
    Kveðja Kolbrún

    • Sæl Kolbrún

      Ég fer ásamt einum reynslumiklum hugleiðslukennara frá Ástralíu norður um þarnæstu helgi og held námskeið á laugardeginum í orkulundi..

      Hvar ert þú á landinu ?
      kveðja
      Einar

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s